Af hverju ættum við að endurnota múrsteina? - Rökræðuæfing

Ímyndaðu þér að þú hittir húsasmíðameistara sem finnst ekki góð hugmynd að vinna með endurnotkun í byggingariðnaði. Eða að þú hittir húsasmíðameistara sem er ekki meðvitaður um nýjustu kröfur og reglugerðir - eða sem er alveg sama þótt þú og þínir kollegar verði útsettir fyrir spilliefnum í ykkar starfi.

Í þessari æfingu átt þú að rökræða kosti og galla endurnotkunar múrsteina og nýta alla þá þekkingu sem þú hefur aflað þér hingað til um endurnotkun múrsteina í byggingariðnaði. Þú verður því að taka afstöðu (annað hvort með eða á móti endurnotkun múrsteina) og færa rök fyrir þinni afstöðu eins vel og þú getur, til að öðlast skilning á málefninu frá báðum hliðum.

Að tala og rökræða við bekkjarfélaga þína ætti að þjálfa þig í að nota tæknileg hugtök, útvíkka og þróa rök þín og undirbúa þig til að taka þátt í samtölum og umræðum um endurnotkun múrsteina í byggingariðnaði.

Handbók kennara:

12. Leir_IS.docx

Umræðuverkefni um endurnotkun múrsteina og sjálfbærar byggingarframkvæmdir

Hluti 1: Unnið í pörum (u.þ.b. 15 mín.)

  • Í fyrri hluta verkefnisins átt þú og félagi þinn að koma með rök með og á móti því að vinna með endurnotkun og aukna sjálfbærni í byggingariðnaði.
    • Sæktu skrána „Viðfangsefni og innblástur“ hér til hægri.
    • Lestu texta verkefnisins.
    • Skrifaðu að minnsta kosti 5 rök með eða á móti endurnotkun múrsteina út frá þessum efnisatriðum. Vertu viss um að útskýra rök þín eins vel og þú getur og ekki hika við að skrifa mótrök líka.

2. hluti: Innan bekkjarins (u.þ.b. 15 mín.)

  • Kynntu rök þín fyrir bekknum. Kennarinn skrifar efnisatriðin á töfluna og skrifar rök þín með og á móti sjálfbærni undir hvern flokk. Þér er velkomið að koma með mótrök í leiðinni.

Hluti 3: Sjálfsvinna (5 mín.)

  • Nú á hver fyrir sig velja þau 3-5 rök sem viðkomandi telur best til að mæla með eða á móti endurnotkun. Þér er velkomið að velja rök sem eru bæði með og á móti. Skrifaðu niður val þitt og skrifaðu setningu um hvers vegna þú valdir hverja röksemdarfærslu.

Hluti 4: Innan bekkjarins (10 mín.)

  • Kynntu ein rök fyrir bekknum sem þér finnst vera góð, ef þú vilt.
  • Ræðið saman í bekknum um þau rök sem flestir hafa valið - hvers vegna? Eru þetta góð rök?
  • Ræðið saman í bekknum um hvort þið séuð orðin fróðari um rök með og á móti endurnotkun?
    • Gætirðu hugsað þér að nota eitthvað af þessum rökum í samtali við einhvern?

Lengd:

u.þ.b. 45 mínútur