Hönnun fyrir aðskilnað
Hugtakið Hönnun fyrir aðskilnað, eða Design for Disassembly eins og það er kallað á ensku, þýðir að mannvirki er hannað á þann hátt að hægt sé að aðskilja smíðina og í kjölfarið nota byggingarefnið í annað mannvirki. Mannvirkið verður því að vera hægt að taka í sundur án þess að eyðileggja þau efni sem notuð eru. Hönnun fyrir aðskilnað má fella inn í byggingarvinnu með múrsteinum í mun meira mæli en er gert í dag.
Tilgangur þessarar greinar og æfingar er að veita þér innsýn í kosti þess að byggja með múrsteinum, þar sem unnið er eftir leiðarljósum hönnunar fyrir aðskilnað, og veita þér þekkingu til að velja múrblöndu sem auðveldar aðskilnað og endurnotkun byggingarefna til lengri tíma litið.








