5. Með eða á móti endurnotkun í byggingariðnaði? - Umræða innan bekkjarins
Umræða um sjálfbæran byggingariðnað og endurnotkun byggingarefna
Reyndu að ímynda þér að þú sért að fara að vinna fyrir iðnmeistara. Þessi iðnmeistari hefur ekki áhuga á að vinna með endurnotkun og endurvinnslu. Í þessu verkefni ætlar þú að búa þig undir að rökræða kosti og galla endurnotaðra byggingarefna og sjálfbærra byggingarframkvæmda. Með því að spjalla og rökræða við bekkjarfélaga þína æfir þú þig í að nota fagtungumál, lærir að velta fyrir þér báðum hliðum umræðunnar og ögrar um leið þínum eigin skoðunum á endurnotkun og sjálfbærum byggingarframkvæmdum.
