4. Hlutverk iðnaðarmannsins
Markmið þessarar æfingar er að veita innsýn og skilning á hlutverki og mikilvægi iðnaðarmannsins í samfélaginu.
Markmið þessarar æfingar er að veita innsýn og skilning á hlutverki og mikilvægi iðnaðarmannsins í samfélaginu.

Iðnaðarmenn gegna mikilvægu hlutverki í samfélaginu. Margar af grunnþörfum mannkynsins eru uppfylltar með vinnu iðnaðarmanna. Á Norðurlöndum eyðir fólk mestum tíma innandyra, sem er mögulegt vegna vinnu iðnaðarmannanna sem reisa byggingarnar sem fólk dvelur í. Norðurlöndin eru tengd saman með samgöngumannvirkjum á borð við vegi, brýr og hafnir, sem eru einnig verk iðnaðarmanna. En byggingariðnaðurinn á líka stóran þátt í losun gróðurhúsalofttegunda og ber ábyrgð á stórum hluta hráefnanotkunar samfélagsins.
Litið til baka
Á árum áður var endurnotkun stunduð víða. Hlutfallið á milli launakostnaðar og byggingarefna var mjög ólíkt því sem er í dag: Efnin voru hlutfallslega mun dýrari en vinnutíminn. Það gat því borgað sig að eyða tíma í að hreinsa, gera við og endurnota efni frekar en að kaupa ný. Stundum voru ný efni jafnvel ekki fáanleg.
Almennt séð var fjárhagslegur hvati í endurnotkun efna og í sumum tilfellum var hún líka einfaldlega nauðsynleg.
Í nútímanum
Frá og með iðnbyltingunni lækkaði verð á byggingarefni vegna þess að fjöldaframleiðsla varð möguleg og samgöngur urðu betri. Á sama tíma minnkaði þörfin fyrir endurnotkun. Þar af leiðandi hefur endurnotkun byggingarefna verið mun minna stunduð undanfarin ár en áður.
Í dag er endurnotkun byggingarefna aftur orðin mikilvæg. Jafnvel þótt endurnotuð efni séu ekki alltaf ódýrari en ný efni, er endurnotkun byggingarefna orðin hluti af stjórnmálaumræðu samtímans, þar sem hún getur hjálpað til við að leysa fjölda vandamála, svo sem loftslagsbreytingar, hráefnaskort og náttúruspjöll.
Þess vegna er mikilvægt að ný kynslóð iðnaðarmanna læri að byggja úr endurnotuðum efnum, svo að byggingariðnaðurinn geti lagt sitt af mörkum til sjálfbærara samfélags.
Hvað vil ég gera með fagið mitt?
Lengd: 45 mínútur
Lestur: 20 mínútur
Verkefni: 25 mínútur
Nú til dags eru gerðar kröfur um lífsferilsgreiningar (LCA) sem leggja áherslu á loftslagsáhrif nýbygginga. Það þýðir að kröfur eru gerðar um hversu mikið af gróðurhúsalofttegundum megi losna við byggingar. Efnin sem notuð eru í byggingar eru mjög mikilvæg fyrir lífsferilsgreininguna og þar af leiðandi einnig losun gróðurhúsalofttegunda.
Markmiðið er að minnka heildar umhverfisáhrif bygginga. Þegar endurnotuð byggingarefni eru notuð losnar minna af koltvísýringi en þegar ný efni eru notuð. Endurnotuð efni skila sér vel í lífsferilsgreiningum.
Þetta þýðir að iðnaðarmenn í nútíð og framtíð verða að geta unnið með endurnotuð efni í byggingarverkefnum til að uppfylla nýjustu kröfur og þarfir.
Þegar reiknað er út hversu mikil umhverfisáhrif hver byggingarframkvæmd hefur á loftslagið eru áhrifin frá öllum þeim efnum sem eru notuð lögð saman, ásamt áhrifum frá byggingarferlinu og rekstri byggingarinnar.
Byggingarefni af lífrænum uppruna (e. biogenic) eru unnin úr plöntum - þar á meðal trjám. Plönturnar sem efnin eru unnin úr ljóstillífa, sem þýðir að plantan tekur koltvísýring (CO2) inn í laufblöðin, bindur kolefni (C) og losar súrefni (O2). Þannig draga plöntur úr magni koltvísýrings í andrúmsloftinu.
Þegar talað er um líffræðilega fjölbreytni er átt við fjölbreytni í náttúrunni, bæði fjölda tegunda og fjölbreytni innan tegunda.
Iðnaðarmenn reisa mannvirki samkvæmt teikningum sem kúnni eða ráðgjafar kúnnans hafa útbúið. Þess vegna hefur iðnaðarmaðurinn sjaldnast bein áhrif á hvaða efni skuli nota í viðkomandi verkefni. Hins vegar getur iðnaðarmaðurinn sjálfur ákveðið hvaða fyrirtæki hann eða hún vill starfa fyrir. Sem iðnaðarmaður getur maður tekið afstöðu og ákveðið að vinna aðeins fyrir fyrirtæki og byggingaraðila sem leggja áherslu á endurnotkun eða aðrar aðgerðir sem stuðla að betra umhverfi.
Samstillt átak meðal iðnaðarmanna um að útfæra mannvirki út frá bestu umhverfislegu sjónarmiðum mun þannig þvinga byggingaraðila til að setja náttúruna í forgang.
Auk þess hafa iðnaðarmenn möguleika á að upplýsa viðskiptavini, samstarfsaðila og fyrirtæki um þær sjálfbærnilausnir sem í boði eru. Samtalið er mikilvægt til að breyta venjum greinarinnar þannig að áhersla verði meðal annars lögð á endurnotkun.
Kröfur um lífsferilsgreiningar hafa leitt til þess að margir í byggingariðnaði horfa nú meira til byggingarefna af lífrænum uppruna.
Byggingarefni sem eru gerð úr plöntum virka sem kolefnisgeymslur. Þetta kolefni getur losnað aftur sem koltvísýringur við brennslu eða rotnun og þannig stuðlað að meiri loftslagsáhrifum. Þess vegna er skynsamlegt að endurnota efnin eða lengja líftíma þeirra til að varðveita kolefnið í þeim.
Með því að endurnota steinefnarík efni sparast orka sem annars hefði verið notuð til að framleiða nýtt samsvarandi byggingarefni. Byggingarefni úr steinefnum stuðla að auknum loftslagsáhrifum í sjálfu framleiðsluferlinu. Hins vegar hafa þessi efni nær engin áhrif þegar þeim er fargað. Þar sem langstærsti hluti orkunnar er notaður í framleiðsluferlinu, fylgja því miklir kostir við að endurnota byggingarefni úr steinefnum og koma þar með í veg fyrir orkunotkunina sem á sér stað við framleiðslu nýrra efna.
Líffræðileg fjölbreytni
Námuvinnsla nýrra hráefna raskar náttúrunni og trjáræktarsvæði eru mjög einsleit.
Þetta er slæmt fyrir líffræðilega fjölbreytni, þar sem líffræðileg fjölbreytni þrífst illa í einsleitri náttúru. Frjóvgun plantna er háð góðri líffræðilegri fjölbreytni, þar sem skordýr af mismunandi tegundum eru ómissandi.
Með því að endurnota og endurvinna efni, minnkar þörfin fyrir framleiðslu nýrra trjáa og námugreftri fyrir framleiðslu byggingarefna. Þannig verður til meira pláss fyrir líffræðilega fjölbreytni.


Í þessari æfingu átt þú að velta fyrir þér og svara eftirfarandi spurningum. Afritaðu spurningarnar yfir í ritvinnsluforrit svo að þú getir auðveldlega skrifað svörin niður. Þú þarft að nota svörin síðar til að kynna þau fyrir bekknum.