Frá jörðu til múrs - ferð múrsteinsins frá hráefni til fullunnar vöru
Frá jörðu til múrs - ferð múrsteinsins frá hráefni til fullunnar vöru
Þegar við stígum inn í múrsteinsbyggingu leiðum við sjaldan hugann að því umfangsmikla ferðalagi, sem hver einasti múrsteinn hefur farið í gegnum, áður en hann varð hluti af byggingunni. Ferð sem hefst í leirnámum neðanjarðar, þar sem náttúran þarf að víkja fyrir jarðýtum, trukkum og fólki. Gríðarlegt magn jarðvegs og orku þarf til að afla þeirra hráefna sem síðar verða að múrsteinum.
Hráefnin eru síðan flutt til framleiðlusvæðisins þar sem þau eru mótuð og bökuð við hátt hitastig sem krefjast mikillar orku. Þegar múrsteinarnir eru tilbúnir þarf að flytja þá til byggingarsvæðisins með þungum ökutækjum, stundum yfir langar vegalengdir.
Nú hefur múrsteinninn farið í gegnum fyrstu fjögur stig lífsferilsins:
1) Vinnslu í hráefnanámu
2) Flutningur til framleiðslusvæðis
3) Framleiðslu
4) Flutning til byggingarsvæðis
Hver hluti þessa ferðalags hefur áhrif á umhverfið, loftslagið og auðlindir.
Til að stuðla að umhverfisvænni múrsteinaframleiðslu eru ýmsar lausnir sem við getum unnið með. Skoðum nokkrar þeirra stuttlega: